Dökkristaðar baunir
- Verð
- 1.750 ISK
- Verð
-
2.350 ISK - Verð
- 1.750 ISK
- Verð
Ef þú vilt góðan og bragðmikinn kaffibolla þá eru dökkristuðu baunirnar okkar fullkomnar. Við mælum eindregið með því að mala baunirnar grófar en venjulega og það er gott að halda 94°C hita þegar hellt er upp á. Það kemur í veg fyrir fyrir að biturt bragð baunanna komi í gegn og auk þess nýtur blær þeirra sér betur.
Auðvitað er hverjum og einum frjálst að hella upp á kaffið sitt á sinn hátt, svo lengi sem hann nýtur bollans! Enginn þekkir þína bragðpellettu betur en þú sjálfur!
Bragðtónar kaffisins sem ættu að skína í gegn eru meðal annars: kakó, kryddjurtir, smjör og dökkt súkkulaði í lokin (e. finsh). Bollinn hefur góða fyllingu (e. full-bodied) og er einnig með lágt sýrustig.
Svæði - Vestur Úganda
Vinnsla - DRUGAR vinnsla (Natural Dry Uganda Arabica)
Hæð - 2.200 metrum yfir sjávarmáli
Afbrigði - SL 14 og SL 28